Nokkrar gamlar góðar
17. febrúar 2008 klukkan 20:05

Það herrans ár 1997, 7.bekkur...eitthvað samstarf milli GB og GÍ. Frá vinstri: Steini, Ásgeir trukkalessa, ég, ?, Jón Haukur og eitthvað draugabarn. Minn maður strax byrjaður að gela á sér hárið.

Árið 2001 held ég...Sigurvin, Einar Ási, ég og Gunnar Ingi ferskir á 16 ára balli í Sjallanum heitnum. Gunnar Ingi var vel tanaður og hress.

1.des hátíðin í Tjöruhúsinu 2002. Ég, Helgi og Addi komnir í gírinn.

2003...Ég og Ævar í partýi á ísó. Í þessu partýi spurði Ævar húseigandann sem sat með okkur í sófanum hvort hann mætti ekki skemma eitthvað í húsinu. Húseigandinn var ekki hress með þessa spurningu.

Þegar Dagur drakk. Þarna dó drengurinn áfengiðsdauða og strákarnir stöfluðu þremur bjórdósum ofan á höfuðið hans.

Partý hjá Sunnu Hermanns fyrir árshátíðarballið 2004 frekar en 2003 minnir mig...held svei mér þá að þetta séu kynþokkafyllstu vinir mínir, Halldór Ingi og Sigurvin.

Halli Hró.

Ég dauður á dimmissoninu í Sigurðarbúð. Sigurjón nýbúinn að éta fullann poka af grillkolum og Sigurvin sjálfsagt að reyna fara með faðir vorið fyrir mig.

Þegar Dagur drakk. Óvissuferðin 2003 og mikið kynsvall var í lauginni á Barðarströnd. Þetta atvik var engin undantekning ef minnið er ekki að svíkja mig. En hvaða stelpa er að kyssa knapann? Væri gaman að fá að vita það.

Þegar ég og Jói vorum að leigja í Lómasölum. Hér má sjá viðbröð Bigga Olgeirs við kynlífsatriðinu í Brokeback Mountain. Jói ekkert að kippa sér upp við þetta enda vanur maður.
Snævar Sölvi Sölvason
18 athugasemdir
18 athugasemdir
